Leikurinn á morgum föstudag er afar þýðingarmikill fyrir bæði lið. KV er búið að tapa þrem leikjum í vetur og Reynismenn tveim. Baráttan er því mikil um að ná sem besta sæti í riðlinum fyrir úrslitakeppnina. Vonandi tekst síðan Henson að vera klárir með nýja búninga fyrir leikinn á morgum.
Leikurinn sem fór fram á mánudag verður minnst fyrir hræðilegann leik okkar manna. Að ná ekki að klára þetta lið er til háborinnar skammar. En svona eru íþróttir stundum. Menn voru ekki að stíga út í vörninni og síðan verður að minnast á vítalínuna. Að fá 36 víti í jöfnum leik og setja aðeins 15 af þeim er ófyrirgefanlegt.
Næsti leikur í 2 deildinni hjá Reynismönnum er næsta mánudag út á Álftanesi. Lið okkar er eins og stendur í harði baráttu við lið Augnabliks um efsta sæti í riðlinum sem á að gefa lakari andstæðing í úrslitakeppninni sem fram undan er að loknum leikjum riðilsins. Fyrri leik liðanna lauk með sigri Reynis 87 - 71